Sumarfjör JG

Sumarfjör JG

Við ætlum að enda vorönnina og fagna Sumrinu fimmtudaginn 25. maí kl 17:00-18:30 með því að hittast úr öllum hópum og fara í leiki og fá okkur Pizzu. Systkini, vinir og foreldrar eru velkomin með.
Allir sem mæta að koma með 1000 kr fyrir pizzunni.
Þetta verður síðasti hittingur vorannar fyrir stutt hlé áður en sumarnámskeiðin hefjast.
Sumarnámskeiðin hefjast strax í byrjun júní.

Æfingabúðir í Danmörku: 

Fyrir þau sem vilja verður í boði að fara í æfingabúðir í Danmörku 30. júlí – 5. ágúst. Til þess að fara er mikilvægt að skrá sig í afrekshópinn og mæta sæmilega í sumar. Við gerum að sjálfsögðu ekki kröfu á fullkomna mætingu þar sem einhverjir verða á ferðalögum í sumar. 

Mikilvægt er að skrá sig fyrir æfingabúðirnar og greiða staðfestingargjald fyrir 1. júlí. (SJÁ HÉR)

Gleðilegt sumar!


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *