Æfingabúðir í Danmörku

Farið verður í æfingabúðir í Danmörku 30. júlí – 5. ágúst 2023. Æfingabúðirnar geta iðkendur sótt sem hafa fengið gult belti eða hærra og æfa með afrekshópi JG í sumar(Skráning hér). Æfingabúðirnar verða í Gerlev íþróttaháskóla og verður æft, gist og borðað í skólanum. Júdóæfingar eru tvisvar á dag, auk þess er einhver dagskrá eins og aðrar íþróttagreinar, leikir og fleira. 
Fararstjórar: Gísli F. Egilson og Sabrína H. Ragnheiðardóttir.

Kostnaður er ca.
11-17 ára:
Gisting, matur (Morgunmatur, hádegismatur, kaffitími, kvöldmatur og kvöldhressing) í viku, námskeiðsgjald. = ca. 43.000kr
Flug: Áætlað ca.. 50.000
Lest: Ca, 4000kr
Samtals ca. 97.000kr*

18 ára og eldri:
Gisting, matur (Morgunmatur, hádegismatur, kaffitími, kvöldmatur og kvöldhressing) í viku, námskeiðsgjald. = ca. 73.000kr
Flug: Áætlað ca.. 50.000kr
Lest: Ca, 4000kr
Samtals ca. 127.000kr*

Skráningafrestur er til 1. júlí.
Til þess að skrá í æfingabúðirnar þarf að (skrá hér). Við sjáum um að panta flugmiða og greiða námskeiðsgjöldin, gistingu og mat**. 
Staðfestingargjald er 75.000kr og skal greitt fyrir 1. júlí 2023: 

Hér er slóð um æfingabúðirnar: https://gerlev.dk/kortkursus/judokursus-2023/

*Áætluð upphæð.
**Morgunmat, Hádegismat, kaffitíma, Kvöldmat og kvöldsnarl.

Ef það eru einhverjar spurningar varðandi æfingabúðirnar er hægt að senda fyrirspurnir á judofelagjg@gmail.com eða hafa samband við Gísla í síma 663-3895.


Comments

One response to “Æfingabúðir í Danmörku”

  1. […] ára og eldri)Afrekshópur er hugsaður fyrir iðkendur sem stefna á æfingabúðir í lok sumars (Sjá hér) og fyrir iðkendur sem eru með gult belti og vilja æfa í sumar. Iðkendur þurfa ekki að stefna […]

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *