UM JG

Júdófélag Garðabæjar var stofnað árið 2010. Björn H. Halldórsson, Gunnar Þorvaldsson, Haukur Hafsteinsson, Jóhanna S. Sigurðardóttir og Þorgrímur Hallsteinsson komu saman 27. maí 2010 og héldu þá stofnfund félagsins. Sumarið 2010 var nýtt í undirbúningsvinnu og hófust æfingar hjá félaginu að því loknu undir handleiðslu Björns H. Halldórssonar.