Júdófélag Garðabæjar býður upp á júdó fyrir börn, unglinga og fullorðna í Urriðaholti og á Sjálandi.
Á æfingum leggjum við áherslu á gleði, hreyfingu og jákvætt umhverfi. Iðkendur læra júdó í öruggu umhverfi þar sem allir fá að þróast á sínum hraða.
Nýir iðkendur eru velkomnir og engin fyrri reynsla af júdó er nauðsynleg.
Æfingatímar geta tekið smávægilegum breytingum í upphafi annar eftir fjölda skráninga og samsetningu hópa. Allar breytingar verða kynntar iðkendum og forráðamönnum með góðum fyrirvara.
5–6 ára – Sjáland
Fædd 2020–2021
Fyrstu skrefin í júdó þar sem börnin kynnast íþróttinni í gegnum leiki og fjölbreytta hreyfingu. Áhersla er á jafnvægi, samhæfingu, fallæfingar og grunnatriði júdó.
Þriðjudagar kl. 15:10–16:00
📍 Íþróttahús Sjálandsskóla
1 æfing á viku
5–6 ára – Urriðaholt (byrjar 23. september)
Fædd 2020-2021
Fyrstu skrefin í júdó þar sem börnin kynnast íþróttinni í gegnum leiki og fjölbreytta hreyfingu. Áhersla er á jafnvægi, samhæfingu, fallæfingar og einföld grunnatriði júdó.
Miðvikudagar kl. 16:15–17:00
📍 Íþróttahús Urriðaholtsskóla
1 æfing á viku
2.-4. bekkur – Sjáland
Fædd 2017–2019
Fyrir bæði byrjendur og þá sem hafa æft áður. Áhersla er á að byggja upp góðan grunn í júdó með fjölbreyttum og skemmtilegum æfingum.
Þriðjudagar kl. 16:00–17:00
Fimmtudagar kl. 16:00–17:00
📍 Íþróttahús Sjálandsskóla
2 æfingar á viku
2.-4. bekkur – Urriðaholt
Fædd 2017–2019
Fyrir bæði byrjendur og þá sem hafa æft áður. Áhersla er á að byggja upp góðan grunn í júdó með fjölbreyttum og skemmtilegum æfingum.
Sunnudagar kl. 15:30–16:30
Miðvikudagar kl. 17:30–18:30
📍 Íþróttahús Urriðaholtsskóla
2 æfingar á viku
5.–7. bekkur – Sjáland
Fædd 2014–2016
Fyrir bæði byrjendur og þau sem hafa æft júdó áður.
Grunnatriði júdó með áherslu á tækni, styrk, samhæfingu og randori. Iðkendur geta tekið þátt í mótum eftir áhuga og hver og einn fær að þróast á sínum hraða.
Þriðjudagar kl. 17:00–18:00
Fimmtudagar kl. 17:00–18:00
📍 Íþróttahús Sjálandsskóla
2 æfingar á viku
5.–7. bekkur – Urriðaholt
Fædd 2014–2016
Fyrir bæði byrjendur og þau sem hafa æft júdó áður.
Grunnatriði júdó með áherslu á tækni, styrk, samhæfingu og randori. Iðkendur geta tekið þátt í mótum eftir áhuga og hver og einn fær að þróast á sínum hraða.
Miðvikudagar kl. 18:30–19:30
Sunnudagar kl. 16:30–17:30
📍 Íþróttahús Urriðaholtsskóla
2 æfingar á viku
8.–10. bekkur – Urriðaholt
Fædd 2011–2013
Júdóæfingar fyrir unglinga, bæði byrjendur og þau sem hafa reynslu af júdó.
Áhersla er á fjölbreytta júdóþjálfun, tækni, styrk, sjálfstraust og randori. Hægt er að æfa sér til ánægju eða taka þátt í mótum eftir áhuga.
Miðvikudagar kl. 19:30–20:30
Sunnudagar kl. 16:30–17:30
📍 Íþróttahús Urriðaholtsskóla
2 æfingar á viku
Ne-waza – gólfglíma
Séræfing með áherslu á gólfglímu og tækni í ne-waza. Æfingin hentar eldri iðkendum sem vilja bæta færni sína og fá meiri þjálfun í gólfglímu.
Miðvikudagar kl. 20:30–21:30
📍 Íþróttahús Urriðaholtsskóla
Æfingagjöld – haust 2026
5–6 ára – 28.000 kr.
1 æfing á viku
2.-4. bekkur – 40.000 kr.
2 æfingar á viku
5.-7. bekkur – 40.000 kr.
2 æfingar á viku
8.-10. bekkur – 40.000 kr.
2 æfingar á viku
16 ára og eldri – 40.000 kr.
Komdu og prófaðu júdó
Nýir iðkendur eru velkomnir að koma og prófa júdó.
Ekki þarf að eiga júdógalla til að byrja – þægilegur íþróttafatnaður dugar á fyrstu æfingum.
Ef þú ert ekki viss um hvaða hópur hentar best er alltaf hægt að hafa samband við okkur og við aðstoðum við að finna rétta hópinn.
