Þjálfarar

Gísli Egilson – 4. dan í júdó

Gísli hefur þjálfað júdó frá árinu 2009 og hefur yfir 17 ára reynslu af þjálfun barna, ungmenna og fullorðinna.

Hann hefur lokið 1., 2. og 3. stigi þjálfaramenntunar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og hefur í gegnum árin komið að fjölbreyttu júdóstarfi, uppbyggingu yngri flokka og kynningu á júdó fyrir börn og ungmenni.

Á æfingum er lögð áhersla á að iðkendur læri júdó í öruggu og jákvæðu umhverfi, hafi gaman af æfingunum og fái að þróast á sínum hraða.

Jóhanna María Grétarsdóttir Noack
Aðstoðarþjálfari – 1. kyu – brúnt belti

Jóhanna María aðstoðar við þjálfun 7–9 ára og 10–12 ára hópanna í Urriðaholti. Hún hefur í nokkur ár aðstoðað móður sína, Anniku Líf Maríudóttur Noack, við þjálfun hjá júdódeild Tindastóls.

Hún hóf að æfa júdó þriggja ára árið 2015 og hefur reynslu af keppni bæði hérlendis og erlendis. Hún varð Íslandsmeistari í U13 árið 2022 og U15 árið 2025.

Árið 2026 varð Jóhanna María Norðurlandameistari í Nage-no-Kata, flokki A-Judo 1B. Hún vann einnig gull í sama flokki á Nordic Kata Open árið 2025.

Eyja Viborg – 1. kyu í júdó

Eyja er virk keppniskona og hefur keppt fyrir Íslands hönd á fjölmörgum alþjóðlegum mótum. Hún er Norðurlandameistari U18 í −52 kg og hefur meðal annars keppt á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar og Evrópumeistaramóti U18.

Reynsla Eyju af æfingum og keppni á alþjóðlegum vettvangi nýtist vel í starfi hennar með yngri iðkendum JG.