Author: gisliegilson
-

Íslandsmeistaramót karla og kvenna 2025
Íslandsmeistaramót karla og kvenna 2025 verður haldið sunnudaginn 27. apríl í Laugardalshöllinni. Allir bestu judomenn og konur landsins verða með. Mótið hefst kl. 10 með forkeppni í öllum þyngdarflokkum sem ætti að ljúka um kl. 12 og úrslitin í þeim flokkum hefjast svo kl. 13:00 og opinn flokkur karla og kvenna strax á eftir og mótslok…
-

5-6 ára byrja í dag
Í dag byrjar 5-6 ára hópur og verða æfingar á föstudögum kl 16:00-16:50 í vor. Gott að hafa nesti með til þess að fá fyrir eða eftir æfingu. Nestið þarf að borða fyrir utan æfingasalinn. Börnin fá tækifæri til þess að læra að taka þátt í æfingu. Farið verður í æfingar sem eflir hreyfifærni og…
-

7-10 ára og 11-14 ára
Æfingar fyrir 7-10 ára eru kl 16:00-16:50 og fyrir 11-14 ára kl 16:50-17:50 alla þriðjudaga og fimmtudaga í vor.Velkomið að koma að prófa. Æfingar eru í Íþróttahúsi Sjálandsskóla. Aðalþjálfari er Gísli F. Egilson, 4. dan
-

Vorönn hefst þriðjudaginn 7. janúar
Gleðilegt nýtt ár! Vorönn hefst þriðjudaginn 7. janúar skv. stundaskrá. Þriðjudagar og fimmtudagar7 – 10 ára kl 16:00-16:5011 – 14 ára kl 16:50-17:5015 ára og eldri kl 17:50-18:50 Kvennahópar11 – 14 ára kl 16:00-17:0015 ára og eldri kl 17:00-18:00
