Íslandsmeistaramót karla og kvenna 2025 verður haldið sunnudaginn 27. apríl í Laugardalshöllinni. Allir bestu judomenn og konur landsins verða með. Mótið hefst kl. 10 með forkeppni í öllum þyngdarflokkum sem ætti að ljúka um kl. 12 og úrslitin í þeim flokkum hefjast svo kl. 13:00 og opinn flokkur karla og kvenna strax á eftir og mótslok áætluð um kl. 15:00.

