5-6 ára byrja í dag

Í dag byrjar 5-6 ára hópur og verða æfingar á föstudögum kl 16:00-16:50 í vor.

Gott að hafa nesti með til þess að fá fyrir eða eftir æfingu. Nestið þarf að borða fyrir utan æfingasalinn.

Börnin fá tækifæri til þess að læra að taka þátt í æfingu. Farið verður í æfingar sem eflir hreyfifærni og fá þau tækifæri til þess að reyna við áskoranir við hæfi. Við reynum að hafa æfingarnar skemmtilegar fyrir börnin.

Fallæfingar eða ukemi eins og það er kallað á Japönsku eru æfingar þar sem viðbrögð við það að detta eru æfð. Markmið fallæfinga er að læra að detta rétt án þess að meiða sig. Við lærum að beita líkamanum rétt við föll. Fyrsta fallæfingin sem börnin læra er að detta aftur fyrir sig. Þá setjum við höku í bringuna og sláum höndunum útréttum á gólfið við lendingu. T.d. nýtist sú æfing vel til að fyrirbyggja höfuðáverka við að detta í hálku eða bara almennt aftur fyrir sig. Fallæfingar eru mikilvægar fyrir júdó en nýtast einnig vel utan íþróttarinnar.