Hauststarf Júdófélags Garðabæjar er farið af stað og í vetur verður boðið upp á júdóæfingar fyrir börn og unglinga í Urriðaholtsskóla og Sjálandsskóla.
Félagið leggur nú áherslu á uppbyggingu starfsins og að kynna júdó fyrir fleiri börnum í Garðabæ. Þessa dagana fara fram júdókynningar í Urriðaholtsskóla þar sem nemendur fá tækifæri til að kynnast íþróttinni og prófa júdó.
Hjá JG viljum við að það sé fyrst og fremst gaman að mæta á æfingu. Börnin læra júdó í öruggu og jákvæðu umhverfi þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, leik og að byggja upp færni og sjálfstraust. Um leið læra þau virðingu, samvinnu og þann aga sem fylgir júdó.
Æfingarnar henta bæði byrjendum og þeim sem hafa áður æft júdó og nýir iðkendur eru velkomnir að koma og prófa.
Æfingar fara fram í Urriðaholtsskóla og Sjálandsskóla. Nánari upplýsingar um hópa, æfingatíma og skráningu má finna á jgsport.is/aefingar/.
Komdu og prófaðu júdó með JG!

