JÚDÓ FYRIR KONUR
Tíu vikna námskeið fyrir konur 13 ára og eldri. Æfingar hefjast þann 5. maí.
Æfingar verða á fimmtudögum kl. 18:00-18:50 í íþróttahúsi Sjálandsskóla.
Hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum.
Skipulag æfinga
Æfingar byrja með góðri upphitun og svo er farið í styrkleika og liðleikaæfingar. Þá er farið í fallæfingar sem eru grunnurinn sem þarf til að geta dottið án þess að meiða sig. Að þeim loknum verða æfð júdóbrögð. Æfingar enda með góðum teygjum.
Verð: 7.900kr,-


Þjálfari er Gísli Egilson, 3. dan. Hann hefur yfir áratugs reynslu af þjálfun og hefur lokið 1., 2. og 3. stigs þjálfaramenntun Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

